Umhverfisstofnun Háskóla Íslands
Umhverfisstofnun Háskóla Íslands (UHÍ) var stofnuð árið 1997, með reglugerð frá Menntamálaráðuneytinu. Stofnuninni var vettvangur fyrir þverfræðilegar rannsóknir á svið umhverfismála og hélt utan um 60 eininga þverfaglegt rannsóknartengt meistaranám í umhverfisfræðum. Frá 1997 til 2005 sinnti stofnunin fjölda verkefna og fjöldi nemenda útskrifaðist frá hinum ýmsu deildum HÍ með meistarapróf í umhverfisfræðum.
Árið 2005 sameinuðust UHÍ og Sjávarútvegsstofnun í nýja rannsóknastofnun háskólans, Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfræðilegar rannsóknir. Nám í umhverfisfræðum og sjávarútvegsfræðum varð á sama tíma að nýju meistaranámi í umhverfis- og auðlindafræðum.
|
|
![]() |
![]() |
![]() |
Meginmarkmið UHÍ voru:
Samhæfa og styrkja umhverfisrannsóknir og kennslu í umhverfisfræðum við Háskóla Íslands;
Samstarf um þverfaglegar rannsóknir á umhverfismálum við deildir HÍ og viðeigandi stofnanir utan háskólans;
Efla samstarf um alþjóðlegar rannsóknir og kennslu, nemenda- og kennaraskipti og tækifæri fyrir gestavísindamenn;
Bjóða upp á fyrirlestra, málstofur, ráðstefnur og styttri námskeið fyrir vísindamenn og almenning um mikilvæg umhverfismál á Íslandi og alþjóðlega.
Umhverfisstofnun og meistaranám í umhverfisfræðum var samstarf margra deilda og skora háskólans, þar með talið, Raunvísindadeild, Verkfræðideild, Viðskipta- og hagfræðideild, Félagsvísindadeild, Lagadeild og Hugvísindadeild.
|
Umhverfisstofnun Háskóla
Íslands
101 Reykjavik Ísland Sími: 354-525-5286 Fax: 354-525-5829 Tölvupóstur: geiro at hi.is |
![]() |